Hér er bara voða gaman
07.02.2007 01:03:26 / blogg

Glænýtt blogg úr hlöðunni!!!



Jæja... Fyrsta bloggið í 8 mánuði eða svo... Fékk svona þvílíkan bloggfýling í kámugu bloggfingurna í miðju atvinnuleysinu og nöturleikanum... 

En hvað hefur gerst síðustu 8 mánuði??... punktar

  • Huginn skítféll.. Gríðar óheppnir
  • Sumarið var samt nett skemmtilegt..
  • Ég held ég hafi ekki eyðilagt sumarið fyrir Jeppe og Martin með að plata þá á seyðis í sumar, en þeir voru að plögga á fullu..
  • Ég vann sem þvottabílstjóri.. (Það var mjög skrítið en nett gaman samt..) magnaður brasni
  • Bensi fór til dk.. (samdi lag um kvikyndið í öllum söknuðinum)
  • Hákon kom fram í kompási og flúði til Bolungarvíkur
  • Fór til Salou þar sem doctorinn og Steini kalli stjórnuðu spilinu.. Docsi snéri flest alla heimamenn niður..  ég brann gríðar illa á öðrum helmingi líkamanns
  • Svanur tanaðist og Tóti skaut vibba í fötu sem kraumaði um dögum saman
  • Séra Hafsteins mallar í pottinum með púddara meðan krakkarnir sem eru í sundkennslu hjá honum svamla í reiðileisi í kuldanum
  • Ýmir gifti sig
  • Jói braust inn á eigin heimili og var fluttur í fangageymslur
  • Saxinn er enn að angra Gunnar Sigvalda
  • Ég sýndi g-streng fyrir 400 konur á konukvöldi á fáskrúðsfirði og fékk að eiga g-strenginn að launum.. góð laun það
  • Ívar Dagsson hef ég ekki séð..
  • Friðjón var gerður fyrirliði??? Hvaða rugl
  • Kobbi var áfram í ruglinu... mallaði pripps í donys stjórnaði spilinu með Stulla í boltanum
  • Olli fer á vit ævintýranna og stofnar familýu með timbrinu í bænum
  • Donni er kominn með allt sem þarf til að opna blómabúð eftir að hafa hrifsað fjölda blóma í sumar..
  • Daddi er að plögga 40 stelpur í einu á myspace..
  • Þorrablót var fínt..
  • Egill trashtalkaði mig síðustu helgi eftir að hafa tapað í trick keppni við mig.. samt nettur gaur
  • Ljónið er mesti fagmaðurinn sem ég hef kynnst upp á síðkastið
  • Man ekki meira sem gerðist
  • Og ég er að farað flytja til Reykjavíkur næstu helgi..

Hér eru svo myndirnar sem lýsa ástandi síðustu mánaða betur en 1000 orð...


Tóti er kominn með skvísu eftir nokkra mánuði á lausu


Svansenegger einnig...


Timbrið hefur stjórnað gleðinni síðustu átta mánuði með einstökum tilþrifum



Þórey Hannesar hefur þó aldrei verið langt undan


Keltarnir Joe og K.B. á veiðum sem aldrei fyrr


Timbur og frú fyrir framan imbann í faðmi fjölskyldunnar..


Merkur atburður er ég spilaði gegn syni mínum í leik á dögunum en slíkt hefur aldrei áður gerst á Íslandi svo menn muni... Við feðgar vorum kátir að leikslokum




Vandræðaunglingurinn Stebbi, sonur Jóa Gísla náðist á mynd drukkinn ásamt litla bróður sínum nú í haust.. Eru þeir nú á betrunarheimili..




Ég og Kalli Kóngur stýrðum gleðinni á konukvöldi á Fráskúrfirði á dögunum og sýndum kvennærföt..


Krissi Pálma og frú...


Gamli góði Sigþór ásamt syni sínum sem hann átti með Mariu Mutolu 5000 metra hlaupadrottingu nú í haust..


Feðgarnir Böðvar og Garðar gerðu erótíska stuttmynd á haustmánuðum sem bar heitið..



Gruggugur eplasíder..

Kannast einhver við sóðann á síðustu myndinni???


Gott comeback???... niii ég veit..

ble

» 29 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 18:31:43 / blogg

Jón Benedikt (slökkvibílabensi)

Jæja, lítið hefur verið bloggað að undanförnu vegna þreytu:$..

en jámm þá er maður kominn á klakkann eftir snilldartíma í danmörku... Síðustu dagarnir voru í hrikalega góðu veðri og síðustu helgina var kveðjupartý og þar mættu Gunni Sigvalda með allar sínar pillur og Ými líka í pokahorninu.. Þetta var snilldar helgi og sváfum við bara útí garði.. Ýmir borðaði linsurnar mínar eftir að ég hafði beðið hann um að geyma þær uppí sér til að halda þeim blautum:S.. hrikalegur gaur þar á ferð, en hann hélt uppi svo hrikalegum gítarstemmara allan tímann að honum er fyrirgefið8).. Svo voru allir kvaddir og það var ágætt að koma heim..

En allt gengur sinn vanagang hérna á Seyðis þó að menn séu mis tanaðir án þess að ég nefni nein nöfn þá hefur Egill unnið hrikalega á taninu í vetur í stað þess að læra í þessu námi sem hann segjist vera í, virkilega gaman að sjá strákinn..

Slökkvibíla Bensi er líka við hestaheilsu þó við feðgar séum að farað vinna í litlu verkefni eftir Völsungsleikinn á morgun sem tengist sársauka.. Talandi um leikinn.. Huginsmenn eru um miðja deild eftir 4 leiki með 5 stig..  Eftir leik verður svo varðeldur, grill og gítar.. jafnvel verður Huginslagið tekið fyrir?? það þarf að gerast sem fyrst.. Spáir 21°C á Seyðis á morgun svo einsgott að allir mæti hér í stemninguna..

Fallegu Danirnir mínir eru komnir til byggða og skorðu báðir í sínum fyrsta leik, mögnuð innkoma.. En þeim líst ekki á úrval kvenna hérna og halda að ég sé að ljúga með það að hér búi myndarlegt fólk.. Engar stelpur hérna að sýna lit?? En Aftureldingarmenn eru í basli og hljóta að fara að týnast aftur austur hvað á hverju.. en jább nóg í bili og þrautir að lokum..

1. Lágvaxinn og snöggur rokkari sem spilaði fram að 10. bekk.. Spilaði bara með einu austfirsku liði.. Tekknískur en einbeitir sér að öðrum málum núna??

2. Frænkur sem voru funheitar í boltanum fram í svona 10.bekk.. Við tvítugsaldurinn.. Önnur varnarjálkur eins og pabbi sinn en hin hefur trúlega verið lipur kantmaður??

3. Egilsstaðabúi sem hefur verið í öllum íþróttum held ég.. Aðallega handbolta og golfi??

4. Drifskaftið á miðju hattarkvenna.. Vinnuhestur sem á engann sinn líka.. Trúlega einn leikjahæsti leikmaður sem spilað hefur á íslandi, alltaf verið á sínum stað síðan ég fékk hár undir hendurnar??

5. Örfættur kraftajötunn sem hefur fengið sinn skerf af þjálfun og spili??

6. Varnarjaxl sunnan af fjörðum.. Með gríðar stóran haus og átti einnig vingott við gríðar hávaxna Seyðisfjarðarmær??

7. Veit ekki hvort hann hafi nokkurn tíma spilað en væri nett ef hann hefði spilað aftarlega á miðjunni með Val Reyðarfirði þegar hann var gutti.. Var með vinsæla heimasíðu fyrir rúmu ári síðan.. nettur gaur??

8. Hefur viðurnefni villidýrs og hefði gott af sömu meðferð sem ég og Bensi förum í á morgun.. Bakvörður af upplagi??

Blekuð

Fólk var gríðarduglegt að kommenta síðast.. heimta sömu gæði á ný..

Sveinbó :P


» 31 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 21:11:43 / blogg

Nýtt blogg og nettar myndir!!

Já okei:|.. ég kem heim eftir eina viku og það verður spennandi að sjá svo klukkan ca 21:00 Sunnudaginn 7. maí eiga allir að vera klárir á Egilstaðaflugvelli þegar ég kem heim og ég ætla að gera einhvern nett trix þarna og svona svo ég mæli með að fólk mæti vel..:)

En já Heklan vann fyrsta leik tímabilsins 7-3 eftir að hafa verið 2-1 undir í hálfleik.. athygliverður leikur, Björn með tvö..

Svo fórum við í akademíunni til Vejle að keppa á háskólamóti..  kepptum 4 leiki unnum 3-1, 3-0, 5-1 og gerðum 0-0 jafntefli sem dugði okkur til að vinna mótið..  Björninn skoraði 6 og Tommi eitt eftir ótrúlega skemmtilega útfærða hornspyrnu.. Eitthvað sem Huginsmenn munu klárlega nota í sumar..  Svo fyrir úrslitaleikinn þá ákváðum ég og Andreas Ginman að plana fagn.. Þannig að ef ég skoraði hlypi ég útað hornfána og tæki brjálað gítarsóló á hann og Ginman kæmi svo og væri brjálaður aðdáandi að dansa..  Svo skoraði ég í leiknum og hljóp að hornfánanum og byrjaði sólóið og lít til baka og sé Ginman sem var vinstri bakvörður alveg hinum megin á vellinum á sprettinum til mín ég sé hvað það er langt í hann og þegar hann var alveg að koma var ég búinn að taka sóló alveg í 15 sek þegar ég ákveð að hætta bara svo þetta varð eiginlega ömurlegasta fagn í heimi..  En annars þvílíkt skemmtileg ferð og flottur skóli þarna..

 

Svo héldum við kveðjuteiti á föstudag heima hjá Tomma sem var nett.. fórum svo niður í bæ á Bridgewater og þar hitti ég alveg ótrúlega mikið af fólki sem ég var ekki búinn að hitta í mörg ár af einskærri tilviljun..  Náði myndum af þessu alveg magnað..

DSCF0045.jpg

Muddi frá Bolungarvík var þarna, hress strákur en var bara svo kalt svo hann ætlaði bara heim..

DSCF0022.jpg

Ég og Phil úr nágrönnum hittumst í fyrsta skipti í mjög langan tíma.. Vorum eitthvað að fíflast bara

DSCF0043.jpg

Böddi sem sat hliðina á mér á HM í Frakklandi var þarna.. hann ætlaði ekki að þekkja mig fyrst en síðan fór voða vel á með okkur.. átti aldeilis ekki von á að sjá hann..

DSCF0026.jpg

Selli var á sínum stað ekki búinn að sjá hann síðan á neistaflugi fyrir 5 árum eða eitthvað..

DSCF0036.jpg

Alla Gorgorian úr Gróttu /KR var þarna líka, þær eru í æfingarferð í Dk. en hún stalst út á lífið að gera sér dagamun hefur verið í fínuformi í vetur, sérstaklega gaman að hitta hana þarna.. langt síðan síðast..

DSCF0034.jpg

Baddy sem vann á hótelinu sem við vorum á í Danmörkurferðinni var líka þarna hún var búinn að dansa samfleitt í 7 daga þarna sem útskýrir svitablettinn í handakrikanum hennar..

DSCF0042.jpg

Tina þýska konan hans Þormóðs Egilssonar sem er á msninu mínu var þarna er nýbúin að missa hægra augað í lestarslysi en annars er bara mjög fínt að frétta af henni er í skóla í Árósum..

DSCF0038.jpg

Ari Rihati frá Finnlandi sem var með mér á lunga í kvikmyndasmiðjunni var líka þarna, skrítið að hafa ekki hitt hann svona lengi..  Hann var búinn að sitja á einhverjum ofni þarna í einhverja 6 tima þegar ég hitti hann, þess vegna var hann svona sveittur..

DSCF0039.jpg

Hitti Ole sem var með okkur úti á Mallorca 95´ rosalega gaman að hitta hann, hann er alltaf hress og er að stofna fyrirtæki í Árósum núna

DSCF0046.jpg

Hitti líka Greig frá Englandi sem var með mér í herbergi í Bobby Charlton skólanum, þvílíkt nettur gaur og fór mjög vel á með okkur

DSCF0051.jpg 

Jarní frá Rússlandi sem kom á golfvöllinn til okkar Friðjóns síðasta sumar var þarna geggjað hress og mundi vel eftir mér gaman að hitta hann aftur..  Var ekkert sérstakur í golfinu en rosa fínn gaur.

DSCF0028.jpg

Veit ekkert hver þetta er?? Held ég hafi farið mannavillt..

En já gaman að hitta allt þetta fólk aftur.. Friðjón mannstu ekki eftir Jarni hann ætlar að koma aftur í sumar meiraðsegja???

Á laugardaginn var svo eitthvað góðgerðarfest í skólanum og þar drapst færeyingur sem heitir eitthvað Nils eða eitthvað á einhverjum dýnum í íþróttasalnum og við fórum eitthvað að krota á hann allan og fara í myllu út um allt á honum og svo fórum við eitthvað og komum svo aftur og teiknuðum meira og svona og síðan í eitt skiptið þegar ég ætlaði að teikna á hann skutlaði ég mér á dýnurnar til hans og fann bara einhverja bleytu og þá var kvikyndið búinn að æla í dýnurnar og ég skutlaði mér í þennan viðbjóð..  þar náði hann mér.. ég var mjög pirraður en af þessu má læra að það eru alltaf færeyingar sem síðast hlæja..  og ekki á að krota á fólk..

 

En já nokkrar fótboltagátur..  Verðlaun í boði fyrir sigurvegarann í þessari

 

1.                   Markvörður við tvítugsaldurinn.  Sló í gegn árið 2002 á innanhúsmóti.  Hætti vegna bakvandamála??

2.                   Sprenglærður leikmaður.  Huginsmaður alla tíð og veit ekki til þess að hann hafi spilað undanfarin 10 ár.  Eitt af undrunum sem kom upp úr knattspyrnuakademíu Huginsmanna á svipuðum tíma og Hörður Ingi og Siggi Sindri??

3.                   Við tvítugsaldurinn og var einn af þeim bestu á austurlandi á sínum aldri þegar hann var svona 9-10 ára..  Núna hlustar hann á rapp???

4.                   Seyðfirskur varnarjaxl í kringum fertugsaldurinn sem segir að Tóti og Doc’s séu kynvillingar???

5.                   Ein erfið hérna..  Reyðfirðingur sem var ágætur í kringum 12 ára aldur..  Kúlulega vaxinn núna var eitt sinn í ME og er í kringum tvítugt??

6.                   Defensive midfielder skotfastur Egilsstaðabúi..  Hefur leikið á norðurlandi undanfarin misseri??

 

Spennandi að sjá hvernig menn hakka þessar spurningar..

Sjáumst 7. maí:D

Sveinbó


» 41 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 19:49:54 / blogg

Blogg um búðinga og ýmislegt annað!!

Sælir góðir hálsar;)

Nú verður sko bloggað.  Er að gæða mér á búðing sem er í svona dollu og ef ég gleymi að borða hann á 2 dögum þá verður hann harður og lokið springur utan af honum og það kemur ógeðsleg lykt.. það hefur gerst tvisvar og er Kusk alveg að verða brjálaður, varð ekki sáttur þegar hann leit í innkaupakörfuna mína í gær og sá að þar var glóðvolgur búðingur meðferðis.;)

Kallinn nýkominn úr klippingu hjá hinum víðfrækna Skagamanni og Hekluleikmanni Haraldi Hinrikssyni..  Er kolljóshærður, stuttklipptur og bara nettur.  En að öðrum nótum.8|

Fórum í bæjinn flestir íslendingarnir og ég var að skoða takkaskó og ætlaði að fá að máta nýju Adidas skóna sem eru alveg helnettir.  Afgreiðslumaðurinn spurði hvernig lit ég vildi máta, og ég svaraði.  “Det skifter svosem ikke svo meget mål.”  Þið megið reyna að giska á hvað ég var að reyna að segja þarna.  En þetta er allavega ekki tungumál.  En allir sprungu úr hlátir og ég varð kjánalegur.:S

Spiluðum leik með Heklu í gær og unnum 7-3..  Skoraði tvö og ekkert smá gaman að komast á gott alvöru gras og tölvan mín er uppfull af vírusum sem ég skil ekkert í.:(

Einnig hef ég áhyggjur af því að systir mín ætli að standa í vegi fyrir því að Svanur nái að útskrifast og ef hún les þetta veit hún hvað er það rétta að gera.  Hleypa honum í gegn án nokkurra vangaveltna.:evil:

Fór til Köben um páskana og það var þrusu fínt.  Menn eins og Guðni Baldur og Helgi Snævar í tómu rugli ráfandi um vafasamar búllur á Istegade að lenda í kröppum dansi, Kjassi le Bum ekki í neinu basli og bara keeping it cool..  Gunnar “dúndrari” Sigvalda var maðurinn með lélegu hugmyndirnar og svo gerði hann eitthvað annað sem ég ætlaði að blogga um en mundi ekki.  En fórum í Tívolí, keilu og Field’s og allan pakkann fengum okkur suddalega góðan ís en lentum í staðinn í basli með minigolfið, fórum í bæinn með vafasömum Breakurum svo ekki sé meira sagt..  Ýmir, Leifsarinn, Skúla, Hrebba 7tt og Natan voru líka nett...

Spurningin er hvort ég eigi að fara á Radiohead tónleika 6. maí, eitthvað sem ég er að velta mikið fyrir mér..  kostar samt kringum 10.000 krónur miðinn..

Þá er komið að spurningaleiknum sívinsæla nú er hann strembinn. Rétt svör við síðustu gátu.  1. Eiríkur Páll,     2. Héðinn hlébarði,    3. Jónas faðir minn,  4. Uni Arge,    5.  Stebbi Haralds,    6. Haffi Harðar..

 

En getið nú???

  1. Hefur verið bakvörður allt sitt líf.  84’ módel sem hefur leikið með liði Ýmis og einu öðru austfirskuliði??

 

  1. Lék með Neista held ég allan feril sinn.  Var markmaður oftast en þegar hann var úti þótti hann aukaspyrnusérfræðingur mikill.  Hætti í kringum 12 ára aldur??

 

  1. Varnarmaður sem spilaði með Hetti..  Í minningunni var hann skotfastur en iðullega í B-liði..  Hættur að spila en gegnir nú mikilvægu hlutverki á línunni??

 

  1. Aldrei æft fótbolta en þó spilað með tveimur austfirskum liðum.  Lykilmaður á firmamótum???

 

  1. Spilaði með Fjarðabyggð fyrir svona 3-5 árum.  Man bara að hann var feitur og rauðhærður og hvað hann hét??  Þó einn af betri mönnum liðsins..

 

6.   Stúlka sem hefur verið lykilleikmaður í sínu liði undanfarin ca. 3 ár.  Varnarmaður með mikinn leikskilning.  Vermir stundum bekkinn en alltaf klár að koma inn í erfiða leiki ef menn eru ekki að standa sig???

  1. Drengur sem mætir á alltaf á æfingar og enginn tekur öxl í öxl.  Hefur spilað með allavega þrem austfirskum liðum á undanförnum 4 árum???

    En já þá fer að styttast í að kallinn að komi á klakann sem verður gaman..

     

    Stutt í næsta blogg, þangað til þá..

    Sveinbó Jóns

     

     
























» 20 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 13:42:27 / blogg

Blogg

Long time no seen..

Stemningin góð en bakið slæmt og harðsperrur töluverðar eftir Amerískan fótbolta..  Vonandi ekki kominn með brjóstlos eins og dúndari Sigvalda fékk á dögunum.. en yfir í allt aðra sálma..

 

Á miðvikudag var vorum við að hlusta á einhverja kalla segja frá ferð sinni á Grænlandsjökul síðan í miðjum fyrirlestri er köttað á það og okkur tilkynnt að eftir 30 mín eigum við að vera klár með svefnpoka og hlýföt því við séum að fara í ferð og var hópnum skipt í 12, 6 manna lið...púff... 8|

Björninn pakkaði einhverju og svo lögðum við af stað eitthvert labbandi með töskur og 5 kg saltpoka (afhverju veit ég ekki) ca 2 km... síðan fórum við að einhverjum skógi með rútu.. og löbbuðum 16 km í átt að Himmelbjerget.. þar biðum við klukkan svona 11 um kvöldið í skítakulda í ca 2 tíma.. síðan var gengið af stað til klukkan 7 um morgunninn stanslaust og leyst verkefni hér og þar um skóginn.. t.d. átti að labba á eldglóðum, kasta manneskju 2 metra og grípa hinum megin, klýfa tré og  labba tvisvar gegnum niðurfallsrör og labba í ísköldu vatni og margt fleira.. en 7 um morgunninn var lagt sig í klukkutíma undir berum himni og svo labbað og fleiri verkefni leyst til klukkan 18 um daginn...

Birninum var þvílíkt kalt og fáir eins illa búnir og hann:(... ekki með neitt útivistardót.. máttum ekki hafa síma, pening, mat eða neitt með.. Björninn stalst með smá mat og var sumt af honum gert upptækt og liðinu okkar því refsað með því að taka dýnur og eitthvað af okkur.. kallinn ekki vinsæll... hahaha.. :D

En þetta var mjög erfitt að borða næstum ekkert og sofa ekkert og labba svona mikið trúlega milli 50 og 60 km.. á götuskóm einhverjum.. en gaman að vera búinn með þetta og nú get ég litið á mig sem útivistargaur.. hmm

 

John Robert lék í leikriti þar sem hann lék dauðann mann allan tímann.. lá bara.. stór skemmtilegur karakter svo var í leikritinu einhver stelpa að skríða yfir hann á meðann og hann sagði svo eftirá hvað hann hefði verið hræddur um að fá púddara á meðan.. hahaha

En svo er spurning hvað maður gerir um páskanna???  Köben telst möguleiki allskonar fólk þar, Skúla og fleiri..

 

Fórum svo í keilu á föstudag og kallinn gat ekki neitt, kannski því hann var illa brunninn eftir ljósabekk eins og myndirnar gefa til kynna..8)

 

tjatja.jpg Björn, Jeppe og Andreas

 

DSCF0018.jpg Herra Kusk og ég

 

 

Ætla að gera svona nettan fótboltaspurningaleik þar sem hann er svo nettur hjá Haffa en minn verður með töluvert öðru sniði þar sem spurt er aðallega leikmenn sem hafa spilað fyrir austan og ekki sumir kannski ekki meikað það þannig að svarið gæti verið þú eða ég, karl eða kona??? Obbobb

Hverjir eru mennirnir??

1.   Hefur leikið með Einherja, Snerti og einu öðru austfirsku liði??

Varnarmaður??

  1. Lék allan sinn feril með Leikni Fáskrúðsfirði en er hættur.. Hafði viðurnefni eftir fótfráu dýri??
  2. Lék með Huginn allan sinn feril fyrir mörgum árum, hætti kringum 15 ára aldur.. Þótti ekki snöggur en bætti það upp með gríðarlegum leikskilningi..  Örfættur, yfirleitt vinstri kantmaður??
  3. Lék með Leiftri á gullaldarárum þeirra, færeyskur framherji??
  4. Lék með Huginn og Einherja, oftast framherji..  Var þekktur fyrir lambarsparðaskotið, hætti í 10. bekk??
  5. Góður í þröngum færum..  No more words needed??

 

Getiði nú??  Nokkrar gætu verið tricki

 

P1010569.jpg

DSCF0030.jpg

 

Eldri myndir sem gleymdust: Intro fest (efri) og svo Hanus, John Robert og Björn á PSV æfingu(kodak moment)

 

 

 

The Bear is out

 

 

 

p.s. svo er golfmót á morgun ösh:D

 

 


» 18 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 12:02:42 / blogg

Just call me Hattrick

Úff veðrið er ægilega gott núna sól og fínn hiti.

Helgin var róleg, kallinn vann pókerkvöld á föstudag með glæsibrag og ég, Tommi og Össi(Sigurjón Kjartansson 2):lol: borðuðum pizzu í gærkvöldi og horfðum á Barca – Real..

 Í gær var fyrsti apríl og þegar ég vaknaði sendi ég sms til Tomma, Ívaranna beggja, Birnu og Jeppe og sagði að Hanus væri kominn aftur og við værum bara að chilla í opholdsstuen og sagði þeim að kýkja á hann áður en færi aftur8|… Allir rifu sig upp og hlupu ægilega spenntir nema Íbbi dags sem keypti þetta ekki.. Tommi hljóp alveg rúman kílómetra:lol:… kall kvölin.. hahaha

Síðustu viku spiluðum við 4 leiki og var Björninn funheitur með 9 mörk.

Sunnudagur; unnum Arabana 7-2 með Heklunni, athyglisvert lið sem við mættum. Eftir 10 mínútna leik vorum við búnir að skora sjálfsmark og markmaðurinn okkar búinn að skora úr útsparki, og völlurinn bara drullupollar. Björnin með 3 mörk og 2 stoddara, Tommi klúðraði einn á móti marki af 2 metra færi en sagði þetta ekki hafa verið færi;) en skoraði 2 og 2 stoddara

Fimmtudagur: Spiluðum með Akademíunni á móti akademíunni í Vejle, unnum 6-1.. Björninn með 3 og Tommi klikkaði aftur 2 metra frá marki einn á móti markinu.. hehe en Hélt því enn fram að þetta hefði ekki verið færi;)..

Laugardagur klukkan 13: Unnum með akademíunni móti einhverju liði 2-0 Björninn með 1 og Tommi klúðraði EKKI einn móti marki..

Laugardagur klukkan 17: Töpuðum með Heklu móti einhverju AGF vara eða varavaraliði 5-7.. Tommi með 1 og meiddist um leið (var bara:D orðinn þreyttur) Björninn með 2 og 2 stoddara.. Rosaleg vika og maður er alveg búinn á því.. Svo var ægilegt púl á Föstudaginn í spring og sprint.. úffúff..

John Robert er að gera allt kreisí hérna.. Hann móðgar danina alveg í gríð og erg og böggar þá á öllu þeirra helsta stolti.. Hann er búinn að segja að handbolti sé einföld kellingaíþrótt, sagði nýlega að Micheal Laudrup hefði bara verið frekar lélegur leikmaður (ekki segja þetta við dana)8| og George Weah væri langbestur.. hehehe.. og svo var hann að rifast við danska stelpu hérna um hvað danir væru spilltasta þjóð í heimi og eitthvað um Mohammedsteikningarnar, sagði líka eitthvað að danskar stelpur þyrðu ekki að segja að þeim þætti gaman að horfa á klám og svo þegar hann var eiginlega búinn að taparökræðunum sagði hann það sem er ekki sniðugt að segja við stelpur.. “I actually think you are rather fat” og stelpan strunsaði inn í herbergi í fýlu.. og svo hló hann endalaust:lol:..

Svo er ég að farað byrja í golfi í project fag þannig að golfundirbúningstímabilið verður tekið af krafti svo menn eins og Friðjón, Docsi og Sr. Viðar þurfa að hafa vaðið fyrir neðan sig.. 8)

Svo klassísk saga frá Hanusi sem er alveg sönn.. "Fyrir nokkrum árum spiluðu tveir framherjar með liðinu hans í færeyjum sem hétu Heini og Ken en þeir voru bara kallaðir "Heiniken""hahaha.. deddari þetta er stysta version af sögunni hún er líka til í 5 mínútna útgáfu og 15 mínutum líka en þá er farið í öll deatails og bakgrunn mannanna í sögunni og svona...

Er Selma hætt að láta dúndra sig??? þetta er maður að heyra??

 p.s. þegar John Robert talar um kvennamál þá segir hann alltaf “tonight a new animal is getting into my trap, looking for my sausage” :lol:

Sveinbi

Gátan:  Hver er maðurinn á myndinni??:|

boggi.jpg


» 20 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 19:12:06 / blogg

Vorið er komið og grundirnar gróa

Jámm það er ýmislegt að gerast hér..  Sólin hefur skinið í heiði hér alveg í 4 daga í röð, grundirnar gróa og vorið er komið... Á æfingu á þriðjudag gerðist slys... Við vorum í skallabolta og fékk Björninn langa sendingu fram, hann var einn á auðum sjó og hugsaði með sér “nú er bara að stanga kvikindið inn”... tek á mikinn sprett og horfi aftur fyrir mig á boltann og stekk svo upp og akkúrat þegar ég er að farað hamra kvikindið.. boom... Björninn var unninn:(... Skallaði ég slánna af öllu afli á fullri ferð og vá hvað þetta var vont... Kúla kom á kinnbeinið en enginn kom til að huga að Birninum til að byrja með heldur hlógu bara allir... já svona er þetta.. Skil ekki hvernig í ósköpunum ég rotaðist ekki8|.. en nóg með það..

Svo er friends open um helgina... 300 krakkar í skólanum og allskonar íþróttamót á morgun...

Á sunnudag er ég að fara að spila með Heklu SK sem er Íslendingalið hér í Aarhus... Ekkert athugavert við það en við erum að fara að spila á móti geðsjúkum Aröbum í liði sem heitir ACFC... þetta lið komst í sjónvarpsfréttirnar á dögunum hér í Danmörku þegar einn leikmaður þeirra var rekinn útaf í leik og var hann ekki sáttur með það og fór heim til sín og sótti bræður og frændur sína sem komu svo með byssur og hafnaboltakylfur og ætluðu að ganga frá dómaranum8|...  Ekki laust við að maður sé stressaður fyrir þennan leik... hehe og á æfingu í dag vorum við Tommi að segja Arne þjálfara frá því að við værum að farað spila þennan leik og ég var alveg að fara að segja að þetta væri gegn einhverjum geðsjúkum mönnum þegar Mohammed (sem er Mohammedstrúi og líkur Kobba J) sagði að pabbi hans væri eitthvað að spila með þeim og hann hefði spilað leik með þeim um daginn... ég hefði trúlega ekki verið vinsæll hefði ég misst þetta út úr mér..

Svo horfðum við á kvennahandboltaleik á fimmtudag í bikarnum Sk Arhus – Alborg... en Alborgar stúlkur eru í undanúrslitum í Champions league og Sk Arhus í næstuefstudeild í Danmörku en leikurinn var æsispennandi endaði 24-22 og haha John Robert var að tala um hvað það væri skrítið að karlar væru í handbolta því þetta væri nú ekki íþrótt fyrir þá... konur ættu að vera í handbolta því þær væru svo aumar í fótunum að þær gætu ekki spilað fótbolta... úff faaagggmaaððurr...

Svo er að koma mynd á það hvenær ég kem heim... er að spá í að taka Radiohead tónleika í Köben 7. maí og koma svo fljótlega eftir það... held það sé plan sko..

Já svo er eitthvað vesen á Kusk núna... hringdi einhver stelpa í hann í gærkvöldi og hann sagði alltaf bara við hana “ég nenni ekki að tala við þig” sagði það bara 100 sinnum.. svo hrindi hún aftur og aftur... og nú er hann alltaf fullur og er að fara í háttinn seint og eitthvað... held stelpan hafi farið illa með hann...:( maður þarf að fara vera svolítið harðari við hann... svo hann endi ekki í ruglinu..

Svo fórum við Jeppe og herra Ginman í Vericenter áðan og nýtti ég mér þá tækifærið að reynað lokka Jeppe í Huginn...  reynað auglýsa Seyðisfjörð... held hann hafi haldið að ég væri að grínast..hehe en ég reyni aftur J

 

Tvífarar dagsins

 

DSCF0029.jpgmller.jpg

Friðjón og Jóhann Georg Möller

hanus.jpgbecker_boris4.jpg

Hanus og Boris Becker Tennisgoð og hjartaknúsari

finnast ekki meiri tvífarar..

Hver átti gullnu setninguna????. "Gulli, Gulli.  Rúðan bara brotnaði":)

blesó

Sveinbjörn

 

 


» 21 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 22:58:12 / blogg

Hellú

Jább búinn að hlaða inn fullt, fullt af myndum hér til hliðar í myndir frá dk... tók ekkert smá langan tíma svo eins gott að þið skoðið þær og segið hvernig þið séuð að fýla þær???

Hvað er annars að frétta af Íslandi?? Menn eins og Björn Gísli ekkert að velta sér uppúr dögginni??


» 14 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 16:38:19 / blogg

öshhh!!!

Fórum til Hollands á föstudag og komum heim í gær… Ferðin var snilld… æfðum alla dagana og svo var leikur síðasta daginn.. sáum Ajax-PSV á laugardaginn ásamt 50.000 manns í góðum gír í Amsterdam Arena leikurinn endaði 0-0...8| á sunnudeginum forum við á Vitesse Arnheim – Rosendal ásamt 20.000 manns í góðum gír hann endaði 5-1 fyrir Vitesse.. fórum svo á æfingu hjá PSV í mánudeginum og skoðuðum Philip Stadion og svona..  Hollendingar eru allir með svona broddagreiðslu eins og Rafael Van der Vaart með þvílíkt miklu geli.. líka gömlu karlarnir..8|

John Robert Ugandabúi keypti sér 1 Lítra af styling geli á eina evru og var í skýjunum með kaupin.. hehe.. hann drullaði yfir Færeyjar og Færeyinga alla ferðina.. Honum fannst ótrúlega fyndið að í Færeyjum væru fleiri kindur en menn.. og alltaf þegar hann sá asnalegan mann eða eitthvað þá sagði hann “I think he´s from Faroe Island” og hló svo endalaust.. svo sagði hann frá því hvað hann væri ríkur því hann fengi alltaf pening undir borðið frá búðinni hans pabba sins sagði.. “its illegal but I like it so much” og hló svo endalaust.. hann er búinn að vera að ferðast um alla evrópu í einhver 3 ár, bara vafra um..

En nú er allur skólinn niðurbrotinn því Hanus Eliasen er farinn heim til Færeyja því tímabilið er að byrja þar… enginn smá sjónarsviptir sem verður af þessum gullmola.. hehe þetta er tekið af heimasíðu íslensks stráks hérna í skólanum.. lesið8|

Ég tilkynnti færeyingnum, Hanusi Eliasen, að við félagarnir þyrftum helst að setjast niður við samningaborðið og ræða málin eins og menn, þetta meikaði engan sens þegar ég var búinn að vippa þessu yfir á enska tungu og skildi greyið eftir í lausu lofti þegar ég fór að sofa í gærkveldi. Þegar ég var búinn á æfingu í morgun hitti ég Hanus í tölvustofunni og við ræddum málin, hann byrjaði á að spyrja mig um hvaða fótboltafélag væri heima hjá mér og í hvaða deild þeir spiluðu, ég svaraði því samviskusamlega, að það héti KFR og spilaði ekki í neinni deild eins og stendur. Eftir nokkrar samræður um KFR og ýmislegt sem tengist neðrideildarknattspyrnu á Íslandi komst ég að því að Íslendingur að nafni Sveinbjörn hefði logið Hanus fullan um að ég væri að reyna að fá hann til að spila í þriðju deildinni heima, þar sem honum yrði lofað íbúð, 50.000kall á mánuði og bíl til notkunar, greyið varð frekar vonsvikið þegar hann komst að því að það eina sem ég vildi var að flytja inn í herbergið hans þegar hann hættir í skólanum...

Haha… en já Hanus fagmaður var á netinu um daginn og upp svona pop-up á skjáinn kom svona “you are visitor nr. 1 billion and you have won 100.000 $” eða eins og maður sér alltaf þegar maður er á netinu.. allt í góðu með það en hann ákveður að hringja í eitthvað númer sem hann fann eftir að hafa klikkað á þetta vinningsdót og var gríðarspenntur… hann hringdi allaleið til Bandaríkjanna og eyddi allri inneigninni sinni og líka inneign sem Atli íslendingur átti..  haha, það var kona sem svaraði og hélt færeyingnum heitum og sagði að hann hefði greinilega unnið eitthvað.. hún fékk nafn og allar upplýsingar um kappann… vá hvað það var fyndið þegar hann var að reynað útskýra fyrir henni hvað hann héti, ætlaði að stafa það:D.. “H- anus” og við hlógum allir og þá skellti konan á og svo hringdi hann aftur og eitthvað vesen, síðan sá hann loksins að þetta var bara blöff og hraunaði yfir konuna skellti á og strunsaði útúr tölvuherberginu síður en svo sáttur..:D

Ég og Anders tókum vel til í herberginu okkar í síðustu viku svo það var orðið freint og hínt og hlustuðum á System of a down á meðan.. ég er að reynað láta hann fýla þetta… fyrsta sem hann sagði um þetta var “this is just noise” og “he’s just screaming” en núna er hann farinn að fýla þetta betur sem er gott.. en herbergið er aftur orðið drulluóhreint, það er bara ekki hægt að halda þessu sæmilegu, ótrúlegt..

 

 



Hver átti þessi orð og við hvaða tækifæri “Þekkiði þennan?? Þetta er hann Lundi!!”;)

 

 



En jább miss jú gæs..  ætla að fara að setja myndir hérna á morgun.. það verður svona linkur til hliðar sem heitir myndir:D

 

 



ble


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 14:22:07 / blogg

Ekki bögga Stig Töfting!!

Já svolítið langt síðan síðasta blogg en nú fer ég að taka mig á...

síðasta vika var góð keppti í körfuboltamóti og poolmóti, tapaði í úrslitum í körfu og við Hanus vorum teammates í pool og við höfðum ekki tíma til að klára poolmótið því við vorum að fara á æfingu.. Svo á fimmtudag fórum við Tommi og Hanus í keilu og gekk hún svona upp og ofan Hanus oftast með yfirhöndina en hver man eftir því því að einn af okkur (nánartiltekið ég) náði 4 fellum í röð í fjórðu og síðustu keppninni8)..það stóð samt alltaf bara 8 á stigatöflunni en náði ekki að klára þar sem tíminn kláraðist akkúrat þá... ég sem var trúlega að fara að setja eitthvað heimsmet.. starfsmenn keiluhússins horfðu bara agndofa á kallinn8)..

Svo vorum við Alexsandra í Köben um helgina og það var mjög gaman...sáum Walk the Line sem var góð, versluðum og löbbuðum og borðuðum allskonar... vorum á ægilegu hóteli á Istegade og var mjög stutt í strikið og lestarstöðina og tivolí og svona.. og aðeins 50 metrum neðar í götunni voru óteljandi búðir með kynlífstækjum og strippstaðir og allskonar áhugavert... ég komst líka að því að Danir geyma öll gothin sín á Hovedbanegården í Köben.. loksins komst maður í feitt.. svo förum við í fótbolta akademíunni í snilldar Hollandsferð á föstudaginn og eftir það verður maður aðeins að fara að róa sig á eyðslunni:S...

Já talandi um Holland þá er ég alveg að farast úr spenningi förum á Ajax – PSV á Amsterdam Arena:lol: og svo einhvern annan leik kannski með Werder Bremen sem er þvílík snilld.. svo verðum við að horfa á æfingar með öllum þessum heitustu klúbbum:lol:.. Svo er maður náttúrulega að fara í landið þar sem að allt er leyfilegt og maður er klárlega að farað nýta sér það ;) hehe... Og Tommi er að taka furðulegustu ákvörðun sem ég hef vitað um síðan að William Wallace ákvað að öskra freedom í staðinn fyrir að sleppa þvi að láta höggva af sér hausinn (hvað var það??)8|.. en já Tómas ætlar frekar að vera heima því mamma Báru er að koma í heimsókn heldur en að fara í þessa geðveiku Hollandsferð???8|8|8|... Endilega kommentið og reynið að fá strákinn til að skipta um skoðun;)...

Annars hafa síðustu dagar að mestu farið í að spila póker.. maður hefði átt að uppgötva (eða uppgvöta?) þá íþrótt fyrir löngu..þvílík snild.. Danir eru mestu spilafýklar sem ég veit um... allir hérna eru með einhvern reikning á Bet24.com og veðja á bókstaflega allt... sérstaklega þegar það er Champions League.. veðja tildæmis á hvaða leikmaður skorar fyrsta markið og einhver veðjaði á hvaða lið fengi fyrstu hornspyrnuna???

En já hérna í skólanum voru leikmenn Randers að borða í hádeginu og með þeim leikur maður að nafni Stig Töfting sem er einn svalasti knattspyrnumaður allra tíma og einn strákur (Mouhammed sem er svo líkur Kobba) bauð í Töfting í sjómann og það var mesta rugl sem ég hef vitað um.. held enginn maður hafi tapað svo snögglega og harkalega í sjómann eins og Mouhammed, þvílíkur kappi þessi Töfting8).. En fyrir þá sem ekki vita hver Töfting er þá hefur hann spilað fullt af landsleikjum fyrir Dani og spilað með Bolton og Hamburg SV, var í Hells Angels:evil: og er svona 1,68 á hæð og er álíka breiður.. Heyrði einhversstaðar að foreldrar hans hefðu verið myrtir þegar hann var svona 18 ára og hann var að keppa úrslitaleik í einhverju móti daginn eftir og var besti maður vallarins.. Ótrúlegur tappi8)..

Já og ein erfið í lokin hver átti þessi orð í byrjun söngvakeppni með djúpum rokkrómi.. "Góða kvöldið, Itchy Palms".. eruð góð ef þið getið þetta... held Ingvi Víshundur eigi að geta þessa.. var mikill aðdáandi þessa..

Take care kids..

Sveinbjörn


» 21 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 12:41:21 / blogg

hæ!!

Jámm bloggið hefur eitthvað dalað en ég verð mjög duglegur í þessari viku:o...  Ýmislegt hefur gengið á í vikunni..  Í gær vorum við að horfa á The Grudge og auðvitað var Toshio þar í aðalhlutverki og var alltaf með eitthvað bögg... snilldarkarakter...

Á þriðjudaginn fórum ég, Hanus, Andreas og Rói í bæinn og í strætóskýlinu vorum við Hanus að ræða um tónlist og ég sagði eitthvað á þá leið að ég fýlaði ekki tónlist þegar konur væru að syngja og svo sagði ég eitthvað líka ”jeg kan ikke godt lide når sorte mennesker laver music” og þá sagði Hanus eitthvað “nejnej æj” og ég vissi ekki alveg hvað hann var að meina og lít þá til hliðar og er þá ekki tveir svörtustu menn Jótlands staddir 1 metra frá okkur og stara á mig með augnaráði sem benti til þess að þeim líkaði afar illa við það sem ég sagði en þá reyndi ég eitthvað að redda mér með því að ég fýlaði nú Tupac og Bob Marley en ekki létti það lundina hjá þeim... þetta er nú alveg týpískt ég og minnir mig á þegar ég var á Metallicu tónleikunum og var svo þreyttur að ég lagðist á öxlina á einhverjum strák sem vinsamlega bað mig að gera það ekki þar sem þeir hefðu verið að spila leikinn þegar má kýla í öxl ef maður sér gulan bíl og honum var illt þar:(.. þá spurði ég hvort þeir mættu ekki kýla í andlit ef þeir sæju svartan mann á hjóli og fékk ég þá sama augnaráð og frá svörtu mönnunum í strætóskýlinu en strákurinn var einmitt að leiða hina kolsvörtu kærustu sýna sem líkaði ekki heldur það sem ég sagði..

Það lýtur semsagt margt útfyrir að ég sé ægilegur rasisti sem ég er alls ekki og verð allavega aldrei eftir að ég kynntist John Robert..

Meistaradeildin var snilld... þetta er langbesta sjónvarpsefni í heimi og alltaf hasar... þeir sem geta ekki borið fram nafnið mitt hérna kalla mig Gudjonsen og er snilld að hafa sama nick og Gudjonsen í ME... einhverjar fréttir af honum annars??? En Eiður var mjög góður í þessum leik og greinilegt að Ronaldinho vissi ekki að hann var að eiga við ÍÞRÓTTAMANN ÁRSINS Á ÍSLANDI8)..

Já og hér vita menn ekki hver Hermann Hreiðarson eða Heiðar Helguson er en menn vita aftur á móti hver Andri Sigþórson er eftir að hann var aðalmaðurinn í CM 98/99 eða einhvern tímann þá8|.. Menn vilja vita hjá hvaða stórklúbbi í evrópu hann spili hjá og eru hissa þegar ég veit það ekki:S... Hvað í andskotanum er Andri Sigþórsson að gera núna????:S

Og já önnur snilld sagði Hanusi þegar einhver svitnar heima og sést svitablettur þá segðum við alltaf “þú ert nú ekki barnanna bestur” eða “youre not best of the babies” og nú segir hann þetta alltaf á æfingum eða einhvers staðar þegar menn svitna..heldur að þetta sé bara íslenskt máltæki sem er alltaf notað við þetta tilefni:).. já mjög gaman að því.. Íslendingarnir hérna segja að ég sé að skemma hann með því að rugla svona í honum og hann sé orðinn svo breyttur en ég vil nú meina að ég sé bara að laga hann:klikk:...

 

 



Góðar stundir, Sveinbjörn


» 20 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 12:02:38 / blogg

Góðan Dag!!!

Veðrið er ekki gott

Frank þjálfari bað mig, Hanus og Tómas að spila leik með liðinu sem hann þjálfar í dag en veðrið og vallarskilyrði buðu ekki upp á það svo ekkert varð úr því.. :(

Ég var veikur á þriðjudag en keppti á innanhúsmóti um kvöldið og mætti svo í skólann á miðvikudag og varð því fárveikur á fimmtudag með eyrnarbólgu:cry: og alles sem var sko leiðinlegt.. En þá hlóð maður bara í sig smertepiller8) og var orðinn fínn í gær..

Mig dreymdi mjög fyndinn draum í nótt.. “ Hanus og Kristoph (Ungverji sem reikti gras á hverjum degi í 2 ár og er svo mesta steik samkvæmt því:!:) voru búnir að binda Andreas Gangó sem er ungverskur markvörður hérna við gólfið með teipi, allt í góðu með það en síðan byrjaði Hanus að sparka af fullu afli í punginn á Andreas og Andreas kvartaði ekkert eins og þetta væri bara vani.. Hanus spurði svo alltaf “is it good?” og Andreas svaraði svo eftir hvert spark “ ahh it´s okay” :Sog svona gekk þetta þvílíkt lengi..” Ruglaðisti draumur sem ég haft í háa herrans tíð..

En jájá

En af Ívari er það að frétta að hann er hættur í skólanum og er farinn að vinna í pylsuvagni:!:............. með kærustunni sinni Matthildi:!:.............. í Þýskalandi:!:....... já ég veit að það getur verið mjög erfitt að trúa þessu en þetta er alveg satt... Þar hýrast þau tvö bara í mínus 7 gráðum á celsiuskvarðanum og tala þýsku og býða í ofvæni eftir viðskiptum8|.... ég endurtek þetta er ekki blöff...

 En nú ætla ég að lýsa fyrir ykkur hjarta þessa skóla og einum magnaðasta manni sem ég hef hitt... Hann heitir John Robert Kakeeto og kemur frá Uganda... hann er 23 ára og mjög lágvaxinn og grannur og alltaf brosandi:D... talar ensku með svona fyndnum afrískum hreim... Hann hafði aldrei séð snjó áður en hann kom og alla daga þá ráfar hann um skólann brosandi og mætir bara í það sem hann nennir... Sefur yfirleitt til hádegis og ef hann er skammaður fyrir að mæta ekki hlær hann bara... Hann er í herbergi beint fyrir neðan mig og ég hef heyrt hann spila “dont worry be happy” allavega 5 sinnum í botni.... lag sem passar honum fullkomlega... svo fýlar hann líka Shaniu Twain????.. Svo núna um helgina var hann niðrí bæ og labbaði fram hjá rútustöð þar og sagði við bílstjóra þar “ take my to diskotek in Silkeborg” og fór hann þangað og var bara einn síns liðs ráfandi í snjónum.. sagði að það hefði bara verið fínt..

Svo er Benji bara hættur í skóla og farinn að vinna á McDonalds:lol:.. þetta heyrði maður

 Annars kýkiði bara á pandora.com magnaður skítur.. Vá langt blogg maður.... tsjúhh

 Hver átti þessi fleygu orð: "mér hefur alldrei verið jafn sár í litla manninum, þó hef ég marg sinnis fengið neglur í hann og líka föst skot. " ???????

hahahahaha :haha:

Bjössi bøsse


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 20:21:20 / blogg

Fínt að frétta

Sæl,
Síðasta vika var þrusufín... margir voru í skíðaferðalagi svo við vorum bara fáir á æfingum:)... En þá var bara mikið um skotæfingar og svoleiðis sem er gaman...
Síðan smellti ég mér til Óðinsvé til Ýmis og Gunna Bogg og Leifs8) og fleiri... Það var mjög gaman sérstaklega að leika sér í stúdíóinu sem þeir mega bara nota eins og þeir vilja:D... Í skólanum þar er maður sem er fáranlega líkur Jóhanni Gíslasyni að öllu leyti:!:...
Síðan var ég áðan að horfa á Curling með dönunum en danska kvennaliðið í Curling þykir líklegt til árangurs á Ólympíuleikunum og öruggilega eina íþrótafólkið sem danir hafa þar og eru þeir ægilega spenntir yfir því:S, eru límdir við skjáinn og skal rýkja þögn þegar fólk horfir á danska Curlingliðið allavega þegar illa gengur og verða þeir pirraðir ef maður kemur með leiðindarkomment á íþróttina, hef brennt mig á því8|...
Svo kýkjum við alltaf á leiki þegar kvennalið SK Ärhus spilar í höllinni hérna þær er þvílíkt góðar unnu síðasta leik með tíu mörkum og leikinn þar á undan 56-25.. þetta er ekkert venjulegt lið og hér eru nokkrar staðreyndir um þetta lið:!:..

  • Hrafnhildur Skúladóttir spilar með þeim og tekur hún 85 kg í bekk... (meira en systir mín!!!:!:)
  • Síðan er Ungversk kona þarna sem er 1,97 cm á hæð, rúmir 2 í skóm og er hún bara þarna því hún er stór:!:
  • Kakkalakkar prumpa á 15 mín. fresti:!:
  • Alfred Hitchcock var ekki með nafla:!:

Tvær síðustu tengjast reyndar ekki Arhus liðinu...

Svo smá spurningarleikur í lokin sem er í 3. liðum:P...
"look at me I am old but I´m happy"
Úr hvaða lagi er þetta textabrot?? Hver flutti lagið upphaflega?? Og hvaða Seyðfirsku feðgar endurgerðu lagið í sumar við miklar vinsældir8)???
Grunar að menn eins og Benji, Hildur Karen, Friðjón og fleiri eigi að leika sér að þessu:)...

Höddi Magg kveður8)

» 14 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 19:21:08 / blogg

Halló

Já það er gríðarlega erfitt hlutskipti að vera bloggari
Nú er maður búinn að vera hér í u.þ.b. mánuð og kann maður bara mjög vel við Danmörk því að hér er...
  • Allskonar skemmtilegt fólk
  • Mjög góðar aðstæður til fótbolta
  • Hér er ódýr bjór

En gallarnir eru
  • Hér eru ENGIN GOTH:whut:
  • Og hér tala allir dönsku
Það er því nokkuð ljóst að maður þarf að hóa í doktorinn og koma Goth menningunni á kortið hér í Danaveldi.. Orðinn nett pirraður á gothleysi:whut:

Svo ætla ég hér að ryfja upp það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir mig á minni stuttu ævi sem gerðist fyrir um það bil 4-5 árum síðan þegar ég hringdi í hann Böðvar vin minn með meiru og ákvað að fíflast aðeins í honum og leika perra sem hungraði í móður hans þetta var einhvern veginn svona...
Ég hringi,
Hinum megin svarað: halló
Ég: ahh umm (stunur með perralegum hljóm)8)
Viðmælandi: hver er þetta?
Ég: ahh umm Bubba, ahh Bubba
Viðmælandi: halló.. hver er þetta? (verð var við pirring hinum megin á línunni)
Ég: aaaah uhumm ahh óó Bubba(gerist æstari og getnaðarlegri í stununum)
Viðmælandi: halló?
Ég: ahh umm prr Bubba
Viðmælandi: hver er þetta?
Ég: ummm ahh Bubba
Viðmælandi: Er þetta Bjössi?(þarna akkúrat heyrði ég að ég var ekki að tala við Bödda heldur faðir hans Pétur)
Ég: uuu.. nei þetta er Siggi (og skelli á) :^):^):^):^)
Þeir feðgar hljóma nákvæmlega eins í síma.. Eftir þetta sat ég stjarfur í svona 3 mínutur:^)... hef aldrei skammast mín neitt í líkingu við þetta.. hvað hafði ég gert:^)... klæmst svona við skólastjórann minn sem ég vissi að ég ætti eftir að hitta á hverjum degi... Pétur sagði svo við Bödda að einhver Siggi hefði hringt og bara verið með einhverja stæla en hélt samt að þetta hefði verið Bjössi:S ... Höfum ekki getað horfst í augu eftir þetta.. Held að Böddi hafi ekki enn fyrirgefið mér þetta:$...
blesó

» 22 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 20:49:03 / blogg

Hver haldiði nema Laddi!!!

Allir eru í fínum fýling hér í Árósum:lol:... Það var grímuball um helgina og ég mætti sem PIMP8) með greiðsluna og blingið og allt á hreinu en vann samt ekki besta búninginn sem var skrítið8|...
Á þriðjudaginn var fyrsta æfingin með Skovbakken og hún var mjög fín nema hvað að það voru rúmlega 30 manns8| á þessari æfingu svo var varla þverfótandi fyrir mönnum.. Annars eru þeir bara býsna góðir þessir kappar þarna, væru trúlega um miðja 1. deildina á Íslandi eða ofar...
Var að spjalla við herra Sigvaldason og hver haldiði að skjóti upp kollinum á google8).. http://images.google.com/images?q=Sey%C3%B0isfj%C3%B6r%C3%B0ur&svnum=
10&hl=is&lr=&start=40&sa=N
Ísland virðist alveg vera að spjara sig fínt á EM og vekja nokkra athygli hérna úti.. Ég er búinn að segja einhverju fólki hérna frá því fólki sem skiptir máli á Íslandi, þeim: Ladda, Bubba Morthens, Einar Bárðar, Gaupa, Sigurbirni Bárðar, Indriða Sigurðs og Randver Þorláks8) og heldur t.d. Hanus núna að Laddi sé þekktasti og merkilegasti maðurinn á Íslandi... ekki veit ég hvaðan það kemur??
Núna hef ég ekki séð Ívar í 3 daga8|...
Jahá svo var ég að lesa bloggið hans Bensa;) sem minnti mig á það að það er stelpa í skólanum sem heitir Sophie Hansen:P og strákur sem heitir Amin8| sem hljómar alveg eins og Halim8|... svo það er næstum eins og ástsælasta par íslensku þjóðarinnar, the Icelandic sweethearts séu hérna í skólanum... það er nú dásamlegt..
Já svo er alltaf hægt að spjalla um Selmu:klikk: og hakkanir:klikk: og svona í kommentum ef þið viljið segja henni eitthvað...
Kashmir svo nettir!!!
Aba hola aba lunci:lol:
Svebbi

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2